Kraftmikil fiskisúpa
Forréttur fyrir 3-4 Aðalréttur fyrir 2
Súpan:
2 msk olía
2 stk hvítlauksrif
20 gr engifer
3 stk stórir tómatar
1 stk stór laukur
1 tsk karrý
1 msk Nomu seafood krydd
2 tsk rifin piparrót
20 gr basilika
¼ ltr rjómi
750 ml niðurlagður tómatur
250 ml vatn
1 msk grænmetiskraftur
Salt og pipar
Fiskur í súpuna
150 gr rauðsprettuflök – skorin í litla bita
150 gr rækjur
1500 gr lax – skorinn í litla bita
Aðferð:
Saxið hvítlauk, engifer, tómat og lauk. Steikið stutta stund í olíu í potti. Bætið karrý, seafood kryddinu og piparrótinni saman við. Hrærið vel á meðan. Bætið niðursoðnum tómat út í pottinn ásamt vatninu. Kryddið með grænmetiskraftinum og salti og pipar.
Látið sjóða vel saman í um 10 mínútur. Bætið þá rjómanum út í og maukið með töfrasprota. Látið suðuna koma upp aftur og bætið fisknum út í. Stráið fínt skornum basil yfir.
Til baka
