Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Soðinn steinbítur með brokkoli

Réttur fyrir fjóra

800 gr steinbítur
300 gr kræklingur
1 stk brokkolihaus
60 gr engifer
4 stk límónulauf.
2 stk lárviðarlauf.
1 msk grænmetiskraftur.
2 stk hvít piparkorn
2 bollar vatn.

Grænmetið:
2 stk rauðlauk
1 stk blaðlaukur
1 stk rauð paprika
1 askja kirsuberjatómatar
1 msk hvítlauksolía
Salt og pipar

Sósa yfir grænmetið:
50 ml tamarin sósa
Safi úr 1/4 sítrónu.

Aðferð:
Hreinsið steinbítinn og skerið í um 100 gr bita, hreinsið brokkolíið og skerið niður. Setjið vatnið í víðan pott, bætið útí helmingnum af engiferinu í um tveim bitum og helmingnum af límónulaufunum ásamt piparkornunum, lárviðarlaufinu og grænmetiskraftinum til suðu. Þegar suðan er kominn upp setjið þá steinbítinn, brokkolí og kræklinginn í sjóðandi vatnið, lækkið hitann og látið sjóða í 3 mínútur.

Skerið grænmetið í bita eftir smekk og snöggsteikið í heitri hvítlauksolíunni í um 2 mín. Saltið og piprið. Setjið grænmetið á fat eða disk. Blandið saman tamarin sósunni og sítrónusafanum og hellið yfir grænmetið.

Veiðið fiskinn og brokkolíið úr vatninu og setjið yfir grænmetið. Saxið restina af engiferinu og límónulaufunum mjög smátt og stráið yfir fiskinn. Fallegt er að setja nokkra kóriander stöngla til skrauts hér og þar en alls enginn nauðsyn.

Til baka