Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Smokkfiskur með núðlum

450 gr hrísgrjóna núðlur
350 gr smokkfiskur
2 stk hvítlauksrif
1 stk rauðlaukur
1 búnt vorlaukur
40 gr engifer
1 stórt rautt chillialdin
6 msk sesamolía
40 gr kóriander
8 gr límonulauf
1 tsk sambal oleik
Maldonsalt og nýmulinn pipar

Aðferð:
Skerið smokkfiskinn í strimla. Maukið engifer og hvítlauk saman í matvinnsluvél. Skerið rauðlaukinn til helminga og svo í þunnar sneiðar. Saxið límóulaufin, kórianderinn og chillialdinið. Grófsaxið vorlaukinn. Sjóðið núðlurnar í söltuðu vatni í um 3 mín, kælið vel og sigtið. Setjið núðlurnar í stóra skál og hellið helmingnum af sesamolíunni yfir.

Steikið smokkfiskinn og rauðlaukinn örstutt í heitri sesamolíunni á pönnu. Bætið hvítlauks-engifermaukinu á pönnuna og saltið og piprið. Setjið innhald pönnunar út í núðlurnar og blandið vel saman. Bætið sambalinu og vorlauknum saman við. Stráið síðan límónulaufunum, kóriandernum og chillialdinu yfir.

Má borðast hvort sem er heitt eða kalt. Ef borðast á heitt er gott að hita núðlurnar upp á heitri pönnu áður en vorlauknum og kryddum er stráð yfir.

Til baka