Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Sjávarréttabaka

600gr ítölsk Fylgifiska lúða (má nota ókryddaða lúðu)
400gr sesam bleikja Fylgifiska (má nota ókryddaðan silung)
220gr rækja
2 msk basilikum olía
20gr ferskur kóríander
1 msk karry mauk
2 tsk seafood Nomu krydd
250 gr ítölsk grænmetisblanda í pokum
2 msk express bouillon grænmetiskraftur
hvítur pipar
150 ml niðursoðinn tómatur
¼ ltr rjómi
6 stk egg
smjördeig

Aðferð:
Smjördegið er lagt í 28cm kökuform með lausum botni þannig að þeki botninn og kantana, varist að það komi göt. Geymið þar til síðar. Öllu öðru er blandað saman í stóra skál. Fyrst er fiskurinn settur í skálina og kryddunum og olíunni blandað saman við. Tómaturinn kreistur út í, síðan rjómanum og öllu hrært varlega saman. Eggjunum er bæt út í einu og einu og hrært varlega í á meðan. Allt sett í kökuformið og bakað í 180°C forhituðum ofninum í um klukkutíma.

Til baka