Saltfisksalat
800 gr saltfiskhnakkar útvatnaðir og roðlausir
300 gr grilluð niðurlögð paprika
250 gr niðurlögð pálmhjörtu
50 gr bergmynta (ferskt oregano)
3 stk hvítlauksgeirar
1 dl ólífuolía
1 dl japanskur brauðraspur (Panko)
svartur pipar
Aðferð:
Skerið saltfiskinn í sneiðar. Kreistið hvítlaukinn yfir og piprið. Bætið ólífuolíunni og Pankoraspinum saman við og steikið á heitri pönnu.Sigtið paprikuna og pálmhjörtun, saxið gróft og bætið steiktum saltfisknum saman við. Saxið bergmyntuna yfir og blandið öllu saman.

