Rækjubollur
500gr rækja
300gr þorskur eða annar hvítur fiskur
1 stk hvítlauksrif
2 tsk karry mauk (mild curry paste)
1 tsk tómat purre
1 stk laukur
1 stk rautt chilli aldin
2 msk ferskur kóriander
2 msk sesamolía
1 tsk sítrónusafi
1 bolli hveiti
salt og pipar
olía til steikingar
Aðferð:
Maukið fiskinn og rækjurnar í matvinnsluvél og setjið til hliðar. Maukið laukinn og hvítlaukinn í matvinnsluvél, bætið sesamolíunni, tómat purre, sítrónusafanum og karrý maukinu saman við. Setjið svo saman við fiskinn og blandið vel. Saltið og piprið. Saxið chilli aldin (taka fræin frá) og kórianderinn út í og setjið hveitið síðast. Mótið í bollur og steikið í olíu á pönnu.
Hugmynd að sósu með:
400 ml kókosmjólk
1 stk sítrónu gras
1 tsk karry mauk
2 stk límónulauf
1 tsk grænmetiskraftur
Aðferð:
Setjið kókosmjólkina upp til suðu, skerið aðeins í sítrónugrasið og bætið út í mjólkina ásamt límónulaufinu og karry maukinu. Sjóðið saman í 5 mínútur.

