Núðlur með laxi & hörpuskel
400gr lax roðlaus og beinlaus
300gr hörpuskel
1 pakki austurlenskar eggjanúðlur
3 stk vorlaukur
1 stk lítil engiferrót
200 ml tokyo teriyaki
4 msk hvítlauksolía
60 gr cashew hnetur
salt og pipar
Aðferð:
Skerið laxinn í teninga. Skrælið og rífið engiferið. Saxið vorlaukinn. Sjóðið núðlurnar í 3-5 mín í vatni og sigtið. Brúnið cashew hneturnar á heitri pönnu og setjið til hliðar. Steikið laxinn og hörpuskelina ásamt engifer í hvítlauksolíunni. Saltið og piprið. Hellið sósunni yfir fiskinn á pönnunni og látið suðuna koma upp. Skiptið núðlunum í skálar og setjið fiskinn í sósunni yfir. Gott að strá hnetunum og graslauknum yfir í lokin.

