Réttur Dagsins

Nýtt á hverjum degi
Lesa meira

Fréttir

Aukavinna í boði
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Límónu lagarnelle með humri

1 pk límónu lagarnelle frá Rustichella
16 stk humarhalar
200 gr sýrður rjómi 18%
1 msk basilmauk frá Rustichella
1 tsk safran
2 msk sítrónuolía
2 stk hvítlauksrif
2 msk ólífuolía

Aðferð:
Pressið hvítlaukinn í ólífuolíuna. Skelflettið humarinn. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Sigtið og setjið í stóra skál. Steikið humarinn í hvítlauksolíunni og saltið og piprið. Bætið basilikumaukinu út á humarinn rétt áður en hann er full steiktur. Hellið sýrða rjómanum og safraninu út á pönnuna og látið sjóða. Hellið innihaldi pönnunnar í pastaskálina og blandið léttilega saman. Setjið sítrónuolíuna yfir allt saman og gott er að rífa parmaosti yfir ef nauðsyn krefur.

Til baka