Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Krabbakökur

400 gr ýsa
600 gr krabbakjöt
150 gr surimi
1 stk rauðlaukur
2 stk hvítlauksrif
1 msk chilli/basil mauk
1 stk rautt chilli aldin
2 msk sesam olía
1 msk grænmetiskraftur
6 stk kafír blöð
4 msk hveiti
Nýmulinn pipar og salt eftir smekk
Olía til steikingar

 

Aðferð:
Hakkið saman ýsuna, krabbakjötið og surimi. Setjið rauðlaukinn, hvítlaukinn og chilli/basil maukið í matvinnsluvél og maukið fínt. Blandið saman við fiskfarsið. Saxið kafír blöðin og chilli fínt, blandið í farsið ásamt sesam olíunni og grænmetiskraftinum. Blandið öllu vel saman og saltið og piprið. Bætið hveitinu saman við og steikið flatar kökur í olíu á heitri pönnu.

Til baka