Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Japanskt sjávaréttasalat

400 gr soba núðlur
500 gr blandaður sjávarfangskokteill
1 stk stór laukur
2 stk hvítlauksrif
3 msk sesam olía
1 tsk wasabi
50 ml japönsk soyjasósa
1 tsk hunang
1 búnt vorlaukur
10 gr kóríander
10 gr mynta
Salt og pipar

Aðferð:
Sjóðið núðlurnar samkvæmt leiðeiningum á umbúðum. Fínsaxið laukinn og hvítlaukinn og létt steikið í 1 msk af sesamolíu. Bætið sjávarfangskokteilnum út á pönnuna og saltið og piprið. Blandið soyjasósunni, wasbi, sesamolíunni og hunanginu saman í skál, hræið og hellið út á pönnuna. Þegar núðlurnar eru soðnar er þeim einnig bætt út á pönnuna og hrært saman við fiskinn.

Gróft saxið kórianderinn, myntuna og vorlaukinn og stráið yfir núðlurnar. Þennan rétt má bæði borða heitan og kaldan.

Til baka