Réttur Dagsins

Nýtt á hverjum degi
Lesa meira

Fréttir

Aukavinna í boði
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Ítalskt humarsalat

16 humarhalar
1 hvítlauksrif
1 búnt rautt basilikum
4 msk basilikum olía
2 msk hvítt balsamic edik
1( krukka ) niðurlögð þistilhjörtu
1 msk grænmetiskraftur
Nýmulinn pipar
2 stk ciabatta brauð
100 gr furuhnetur
100 gr parasan ostur

Aðferð:
Skelfléttið humarinn og steikið á pönnu í 2 msk af basiliku olíunni. Pressið hvítlaukinn og setjið yfir humarinn. Stráið grænmetiskrafti yfir og takið humarinn af pönnunni. Kælið, skerið brauðið í tvennt og ristið á pönnunni. Saxið helminginn af basilikunni og bætið út í humarinn. Sigtið olíuna af þistilhjörtunum og blandið þeim varlega saman við humarinn. Ristið furuhneturnar á þurri pönnu. Hellið edikinu saman við olíuna af þistilhjörtunum og hellið yfir humarinn. Setjið botninn af brauðinu á disk og þar ofan á humarsalatið. Piprið. Stráið furuhnetunum yfir réttinn. Sneiðið parmasanostinn í þunnar sneiðar og stingið óreglulega í salatið ásamt basiliku blöðunum sem eftir eru. Látið svo basilikuolíuna dropa yfir.

Til baka