Humarsalat
300gr af pilluðum humri
1 stk hvítlauksrif
1 búnt vorlaukur
200gr þystilhjörtu
100 ml sýrður rjómi
100 ml mayjones
½ sítróna (safinn)
1 msk seafood rub frá Nomu
Salt og pipar
Olía til steikjunnar
Aðferð:
Steikið humarinn í olíu á heitri pönnu og kælið. Pressið hvítlaukinn, saxið vorlaukinn og þystilhjörtun og setjið í skál. Hrærið sýrða rjómanum saman við ásamt mayjonesinu. Kreistið safann úr hálfri sítrónu yfir og setjið seafood rub kryddið saman við. Látið loks humarinn út í og hrærið varlega. Saltið og piprið eftir smekk.

