Heitt sjávarréttasalat
Forréttur fyrir fjóra
150 gr rækjur
150 gr hörpuskel
15o gr humar.
150 gr risarækjur
1 búnt vorlaukur
1 hvítlauksrif
2 dl rjómi
1 msk dijon sinnep
1 tsk hunang
2 sólþurrkaðir tómatar
1/2 búnt kóriander
safi úr einni sítrónu
Maldonsalt og pipar.
Aðferð:
Hreinsið humarinn og rækjurnar úr skelini og leggið til hliðar. Saxið hvítlaukinn smátt ásamt vorlauknum, sólþurkuðu tómötunum og kóriandernum. Snögg steikið humarinn, risarækjuna og hörpuskelina í olíu ásamt hvítlauknum. Bætið sinnepinu á pönnuna, kreistið sítrónusafan yfir. Saltið og piprið.
Bætið hunanginu út á pönnuna og hellið rjómanum yfir, látið suðuna koma upp og setjið rækjurnar og sólþurkuðu tómatana saman við. Stráið vorlauknum og kóriandernum yfir.
Til baka
