Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Fylltur chilli með rækjumauki

Gott á salat

4 stór lífrænt ræktuð chilli aldin
250 gr rækjur
1 msk kóríander
100 gr rjómaostur
Maldon salt

Aðferð:
Skerið chilli ávöxtinn í tvennt langsum og hreinsið fræin burt. Maukið rækjurnar, rjómaostinn og kóriander í matvinnsluvél. Smyrjið maukinu í chilli ávöxtinn og bakið í 180°C forhituðum ofni í um 5 mínútur.

Tillaga að meðlæti:

Gúrku- og baunaspírusalat:

1 bakki baunaspírur
1 stk agúrka
1 búnt mintulauf
2 búnt vorlaukur
Sítróna

Aðferð:
Takið kjarnann úr agúrkunni og skerið í sneiðar. Blandið baunaspírunum saman við ásamt heilum mintublöðum og fínt söxuðum vorlauknum. Setjið á diska og leggið bakaðan chilli ávöxtinn ofan á.

Gott að kreista sítrónu yfir.

Til baka