Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Wok lúða

Réttur fyrir fjóra

800gr smálúða
1 stk meðalstór laukur
150 gr sveppir
1 tsk rautt thai-curry mauk
2 tsk saxaður kóríander
1 tsk fínt saxað sítrónugras
160 ml kókosmjólk
1 búnt vorlaukur
100 gr baunaspírur
Örlítið hveiti
Salt og pipar
Olía til steikingar

Aðferð: Skerið lúðuna í um 4-5 cm bita og leggið til hliðar. Skerið laukinn og sveppina til helminga og svo þvert í sneiðar og leggið til hliðar. Lúðunni er velt upp úr hveiti. Salti og pipar stráð yfir eftir smekk og steikt í olíu á heitri wok pönnu. (má nota aðrar tegundir af pönnum) Bætið lauknum á pönnuna og svo sveppunum og látið steikjast í um 2 mínútur á hvorri hlið.

Bætið rauða curry maukinu, saxaða kóríandernum og saxaða sítrónugrasinu ásamt kókosmjólkinni út á pönnuna og látið blandast vel. Takið af pönnunni og bætið skornum vorlauknum ásamt baunaspírunum saman við rétt áður en borið er fram.

Gott með hrísgrjónum eða austurlenskum núðlum.

Til baka