Réttur Dagsins

Nýtt á hverjum degi
Lesa meira

Fréttir

Aukavinna í boði
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Vatnasilungur með blóðbergi & hundasúrum

Réttur fyrir fjóra

4 stk vatnasilungur
4 msk Sinnep
3 msk vilt íslenskt blóðberg
100 gr villtar íslenskar hundasúrur
100 gr klettasalat
150 ml Ólífuolía
1 stk lime
Sjávar salt og pipar

Aðferð: Gott er að bein hreinsa silunginn eða flaka. Þegar því er lokið er bæði roð og hold silungsins smurt með sinnepinu. Saltið og piprið. Helmingurinn af blóðberginu er mulinn með fingurnum yfir fiskinn ásamt örfáum vel söxuðum laufum af hundasúrunni. Blandið saman restinni af hundasúrunum og klettasalatinu í skál. Notist síðar.

Skafið börkinn af hálfu limi í litla skál og kreistið safann úr öllum ávextinum ofan í skálina. Bætið ólífuolíunni saman við, piprið aðeins og hrærið vel saman. Notist síðar.

Silungurinn er steiktur á heitri pönnu í olíu, fyrst á roðhliðinni í um 2 mínútur. Snúið við og steikið í um 1 mínútu á holdinu.

Leggið salatið á disk, silunginn ofan á og lime dressingunni yfir allt saman. Fallegt er að strá svo blóðberginu yfir

Til baka