Tindabikkja með sinnepi & garðablóðbergi
Réttur fyrir fjóra
4 stk tindabikkjubörð
1 stk hvítlauksgeiri
2 dl olía
2 msk dijon sinnep
Smá hveiti
1 stk laukur
2 msk capers
Salt og pipar
1½ dl rjómi
1 dós (190 gr) sætir niðursoðnir cherry tómatar (Sacla)
3 stilkar ferskt garðablóðberg
Aðferð:
Smyrjið tindabikkjubörðin með sinnepinu og saltið og piprið. Sláið aðeins í hveiti og steikið í olíu og mörðum hvítlauk á heitri pönnunni. Saxið laukinn mjög smátt og steikið með börðunum, bætið kapersnum saman við. Þegar tindabikkjan er tilbúin takið af pönnunni og hellið rjómanum út á og látið sjóða. Bætið cherry tómötunum saman við. Takið garðablóðbergið af stilkunum og stráið í rjómann. Setjið tindabikkjuna aftur á pönnuna í stutta stund.

