Þorskur með grænu karrý
Réttur fyrir fjóra
800 gr þorskur roðlaus og beinlaus
50 gr grænt tælenskt karrý mauk
1 msk olía til steikingar
100 gr sveppir
1 stk rauðlaukur
1 búnt vorlaukur
2 stk límónublöð (kaffírblöð)
400 ml kókosmjólk
20 gr kóríander
Salt og pipar
Aðferð:
Setjið olíuna á pönnuna og leysið karrý maukið upp á pönnunni við vægan hita í um 2 mínútur. Saxið límónu blöðin og bætið út á pönnuna ásamt kókosmjólkinni. Látið suðuna koma upp. Skerið þorskinn í bita bætið honum út á pönnuna og látið sjóða í um 3 mínútur. Skerið laukinn til helminga og svo í sneiðar og bætið honum út í ásamt gróft skronum sveppunum í mjög stutta stund. Saltið og piprið ef þurfa þykir. Skerið vorlaukinn og kóríanderinn og stráið yfir þegar bera á réttinn fram.

