Steinbítskinnar í teriyaki
Réttur fyrir fjóra
1 kg steinbítskinnar
1 stk hvítlauksgeiri
2 msk ólífuolía
40 gr engifer
2 msk kóriander
1 msk sesamfræ
Salt og pipar
Örlítið hveiti
2 dl Tokyo teriyaki
Olía til steikingar
Aðferð:
Búið til kryddlög með því að skræla engifer og saxa smátt ásamt hvítlauknum og kóríaner. Allt sett í skál og ólífuolíu bætt út í ásamt 2 msk af Tokyo teriyaki. Leggið steinbítskinnarnar út í, stráið sesamfræjum yfir og látið liggja í 2-3 klst.
Veltið kinnunum upp úr hveiti og steikið í olíu á heitri pönnu í um 2 mínútur á hvorri hlið. Saltið og piprið eftir smekk. Hellið Tokyo teriyaki út á pönnuna og láið suðuna koma upp.
Gott með hrísgrjónum og salati.
Til baka
