Steikt þorskhrogn með rauðlauk & kapers
Réttur fyrir fjóra
800gr þorskhrogn
1 ltr vatn
1 stk hvítlauksrif
20 gr græn piparkorn í legi
30 gr basil
2 msk sítrónuolía
Örlítið hveiti
Salt og pipar
20 gr kapers
1 stk rauðlaukur
100 ml rjómi
20 gr smjör til steikingar
Aðferð:
Pakkið þorskhrognunum inn í plastfilmu og rúllið upp á endana svo hrognin lokist vel inni í filmunni. Setjið þau í sjóðandi vatn og látið sjóða í um 12 mínútur. Kælið hrognin að lokinni suðu. Þegar þau eru orðin köld þarf að skera þau í sneiðar. Maukið saman basil, hvítlauk og piparkorn í matvinnsluvél. Hellið sítrónuolíunni saman við og leggið hrogn sneiðarnar í löginn. Sláið hrognunum í hveiti og saltið og piprið. Steikið hroginin á heitri pönnu í smjörinu í um 1 1/2 mínútu á hvora hlið. Samtímis er saxaður rauðlaukur og kapers sett á pönnuna og loks er rjómanum hellt út á. Gott er að láta suðuna koma upp. Smakkið til og saltið og piprið eftir smekk.

