Sesam skötuselur
Réttur fyrir fjóra
1 kg skötuselur
4 msk sesamfræ
2 stk mandarínur
1 stk engiferrót
2 stk hvítlauksrif
1 stk blaðlaukur
Salt og pipar
1 dl soyjasósa
1 msk hunang
Sesamolía til steikingar
Aðferð
Afhýðið mandarínurnar og takið sundur í báta. Hreinsið og pressið hvítlaukinn. Hreinsið engiferinn og saxið smátt. Saxið blaðlaukinn.
Skerið skötuselinn í 100gr bita, veltið honum upp úr sesamfræjunum og saltið og piprið. Steikið í sesamolíunni á heitri pönnu í um mínútu á hvorri hlið. Bætið grænmetinu á pönnuna ásamt mandarínunum rétt áður en skötuselurinn er að verða tilbúinn. Hellið soyjasósunni og hunanginu saman við og látið sjóða örstutt.
Til baka
