Réttur Dagsins

Nýtt á hverjum degi
Lesa meira

Fréttir

Aukavinna í boði
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Sesam saltfiskur

Réttur fyrir fjóra

Þessi uppskrift var gefin í sjónvarpsþættinum Ísland í bítið þriðjudaginn 2. ágúst 2005.

800 gr saltfiskshnakkar
2 msk hveiti
2 msk sesamfræ
1 dl hvítlauksolía (1 stk hvítlauksrif í 1 dl olíu og örlitlu af steinselju)
1 stk kúrbítur
2 stk rauðlaukur
150gr svartar ólífur
Nýmulinn pipar
Olía til steikingar

Aðferð:
Smyrjið hvítlauksolíunni á saltfiskinn. Blandið saman sesamfræjunum og hveitinu og veltið saltfisknum upp úr. Piprið og steikið á heitri pönnu í olíu í um 3 mínútur á hvorri hlið. Skerið kúrbítinn og rauðlaukinn í grófa strimla og steikið með saltfisknum á pönnunni eftir að honum hefur verið snúið við. Bætið ólífunum saman við í lokin.

Sósan
20 stk tómatar
2 stk stórir hvítlauksgeirar
200 ml niðursoðin paprika
2 msk saxaður engifer
2 dl basil olía
1 búnt basil
Salt og pipar

Aðferð:
Hreinsið burtu kjarnann úr tómötunum. Setjið tómatana í pott ásamt basil olíunni. Saxið hvítlaukinn og engifer, skerið paprikuna í bita og bætið út í.  Látið malla saman við vægan hita í um 4 mínútur. Gróf saxið basil blöðin og hrærið saman við. Saltið og piprið eftir smekk. Látið malla í um 3 mínútur til viðbótar.

Til baka