Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Rauðspretta með kóríanderpestó

Réttur fyrir fjóra

800 gr Rauðspretta (roðlaus og beinlaus)
1 msk kornað sinnep
2 msk kóriander pestó
1 msk hvítlauksolía
Salt og nýmulinn pipar
Olía til steikingar
Örlítið hveiti.

Blandið saman sinnepinu, pestóinu og hvítlaukolíunni og hellið yfir rauðsprettuna. Veltið fisknum upp úr smá hveiti og steikið í olíu á pönnu. Saltið og piprið.

Tillaga af meðlæti:
Sítrónu lagarnelle með furuhnetum og parmesan osti.

250 gr sítrónu laganelle
80 gr furuhnetur
3 msk sítónuolía
100 gr parmasan ostur
Salt og nýmulinn pipar

Aðferð:
Sjóðið pastað í ca 3 mín í vatni sem bragðbætt er með salti og 1 msk af sítrónuolíunni. Sigtið vatnið af og setjið í skál. Bætið restinni af sítrónuolíunni saman við ásamt ristuðum furuhnetunum (hægt að vera búinn af rista hneturnar). Blandið vel saman og rífið parmasan ost yfir og piprið.

Til baka