Laxabollur með gúrkusósu
Réttur fyrir fjóra eða smáréttur fyrir átta
600 gr roðlaus og beinlaus lax
2 msk sesamfræ
1 tsk kanill
1 msk sesam olía
1 msk sæt chillisósa
3 msk kóriander
2 msk minta
1 stk laukur
2 stk hvítlauksrif
Salt og pipar
Olía til steikingar
Sósa
2 msk sítrónusafi
1 dl sýrður rjómi
1 stk agúrka
Nýmalaður pipar
Aðferð:
Skerið laukinn og hvítlaukinn og setjið í matvinnsluvél og fínmaukið. Setjið í skál. Skerið laxinn í bita, setjið í matvinnsluvél og grófmaukið. Blandið laxinum saman við laukinn. Bætið sesamfræjum, sætu chillisósunni, kanil, mintu og kóriander saman við og saltið og piprið.
Búið til sósuna með því að hreinsa kjarnann úr agúrkunni. Grófrífið agúrkuna niður í rifjárni. Bætið sítrónusafanum og sýrða rjómanum út í og piprið eftir smekk.
Mótið laxafarsið í matskeið og steikið í olíu á heitri pönnu í um 3-4 mín á hvorri hlið.
Til baka
