Réttur Dagsins

Nýtt á hverjum degi
Lesa meira

Fréttir

Aukavinna í boði
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Steinbítur og sætar kartöflur í bökunarpapír

Réttur fyrir fjóra

800gr steinbítur
2 stk sætar kartöflur
2 stk vorlaukar
2 stk límónublöð
1 stk límóna
80 gr smjör
1 stk meðalstórt engifer
salt og pipar
4 stk bökunar pappír ca 40x40cm

Aðferð:
Skerið steinbítinn í 100gr bita og leggið tvo á bita fyrir miðju hvers bökunarpappírs og saltið og piprið. Skrælið og skerið kartöflurnar í litla bita og setjið með fisknum á pappírinn. Skrælið engiferinn og saxið ásamt límónublöðunum og setjið á fiskinn. Skerið límónuna í fernt og kreistið yfir steinbítinn. Setjið bátinn með ofan á. Saxið vorlaukinn og bætið út á ásamt smjörinu. Lokið bökunarpappírnum vel, með því að taka saman hornin og snúa þar til allt er vel lokað. Bakið í 15 mínútur við 200°C.

Til baka