Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Rauðspretturúllur með grilluðu eggaldin og mozzarella

Réttur fyrir fjóra

800gr roðlaus rauðsprettuflök
180gr grillað niðurlagt eggaldin
100gr sólþurkaðir tómatar
2 stk tómatar
1/2 búnt basilika
2 stk mozzarella kúlur
Salt og pipar

Aðferð:
Skerið rauðsprettuflökin í tvennt eftir endilöngu flakinu. Raðið rauðsprettunni á bakka og saltið og piprið. Maukið eggaldin, sóltómat og basilikuna í matvinnsluvél og smyrjið maukinu jafnt á fiskinn. Skerið tómatana og ostinn í báta og setjið einn af hvoru á fiskflökin. Rúllið flökunum upp með fyllinguna fyrir miðju og raðið í smurt eldfastmót. Bakið í um 12 mínútur í 200°C forhituðum ofni. Afganginn af ostinum og tómötunum er gott að blanda saman við ferskt klettasalat og bera fram sem meðlæti ásamt ólífuolíu, salti og pipar.

Til baka