Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Gratíneruð saltfisksstappa

Réttur fyrir fjóra

800 gr útvatnaður saltfiskur
400 gr kartöflur
2 stórir laukar
2 hvítlausrif
100 gr smjör
4 msk basilikum olía
20 gr basilikum blöð
200 gr rifinn mozzarella ostur
Nýmulinn hvítur pipar

Aðferð:
Skrælið kartöflurnar og skerið í bita. Setið þær svo yfir til suðu. Bætið saltfisknum út í pottinn eftir að kartöflurnar hafa soðið í um 15 mín og látið sjóða saman í um 5 mín eða þar til kartöflurnar eru orðnar vel mjúkar. Sigtið vatnið frá og látið fiskinn og kartöflurnar aftur í pottinn.

Maukið laukinn, hvítlaukinn og basilikuna saman í matvinnsluvél og setið út í pottinn. Setjið pottinn aftur á eldavélina við vægan hita. Blandið öllu vel saman ásamt smjöri í litlum klípum og hrærið í á meðan. Bætið basil olíunni einnig saman við og piprið.

Setið í eldfast mót, stráið ostinum yfir og bakið við 200°c í um 10 mín

Til baka