Bakaður þorskur með eggaldin
Réttur fyrir fjóra
4 stk þorskhnakki 200 gr/stk
Maldon salt
Nýmalaður pipar
8 msk eggaldin mauk (pesto)
4 stk tómatur
2 stk laukur
100gr rifinn ostur
Aðferð:
Raðið þorskhnökkunum í olíu smurt eldfast mót og saltið og piprið. Smyrjið eggaldin maukinu á þorskinn og stráið rifna ostinum yfir. Skerið laukinn og tómatanna í sneiðar og leggið til hliðar í eldfasta mótið. Forhitið ofninn í 200°C og bakið í 14 mínútur..

