Skötuselur með pistasíuhnetum
Réttur fyrir fjóra
1kg skötuelur
3 msk pístasíuhnetur
1 stk hvítlauksrif
5 msk pístasíuolía
1 stk appelsína
¼ búnt kóriander um 20 gr
Maldon salt
Nýmulinn pipar
Aðferð:
Skerið skötuselinn í fjóra 250 gr bita. Maukið pístasíurnar og hvítlaukinn í morteli. Bætið pístasíuolíunni saman við og hellið maukinu yfir fiskinn. Rífið appelsínubörkinn og bætið honum út í kryddlöginn ásamt söxuðum kóriandernum. Skerið appelsínuna í 4 þykkar sneiðar og leggið út í löginn með skötuselnum og látið standa í kæli í nokkra klst áður en hann er grillaður. Grillið í 3-5 mín á hvorri hlið eftir þykkt skötuselsbitanna. Meðan grillað er, er gott að pensla leginum á fiskinn. Ef enn er afgangur af leginum þegar grillun er lokið má hella honum yfir fiskinn áður en hann er borinn fram.
Berið fram t.d. með sætum kartöflum
Til baka
