Skötuselur með grófu sinnepi & garðablóðbergi
Réttur fyrir fjóra til fimm
1 kg hreinsaður skötuselur
3 msk gróft sinnep
1 msk balsamik edik
½ búnt garðablóðberg
2 stk hvítlauksrif
3 msk sítrónuolía
Nýmulinn pipar og sjávarsalt
Aðferð:
Skerið skötuselinn í 80 – 100gr bita. Hreinsið hvítlaukinn og merjið hann út í sítrónuolíuna. Blandið grófa sinnepinu og balsamik edikinu saman við olíuna og hellið yfir skötuselinn. Hreinsið garðablóðbergið af stilkunum og stráið yfir skötuselinn. Látið liggja í kæli í nokkrar klukkustundir áður en grillað.
Saltið og piprið rétt fyrir grillun. Grillið á heitu grillinu í um 3 mínútur á hvorri hlið. Gott að loka grillinu á meðan. Hægt er að blanda sýrðum rjóma saman við restina af kryddblöndunni og hafa sem sósu með fisknum.
Til baka
