Hámera piparsteik
Réttur fyrir fjóra
800 gr hámeri
1 stk lítil engiferrót
3 stilkar fáfnisgras
2 msk grænn pipar
2 msk sinnep
2 dl ólífuolía
maldonsalt
2 stk límónur
Aðferð:
Skerið hámerina í hæfilega þykkar sneiðar.Maukið hvítlaukinn út í oliuna og bætið fínt söxuðum engiferinum og fáfnisgrasinu saman við. Merjið piparkornin,t.d. í morteli og blandið sinnepinu saman við og hrærið saman við olíuna. Láti hámerina liggja í leginum í nokkrar klukkustundir áður en þið matreiðið. Gott er að grilla eða pönnusteikja hámerina en best er að steikja fiskinn ekki alveg í gegn. Saltið eftir smekk um leið og steikurnar eru eldaðar Ath ef á að grilla er gott að skera límónuna í tvennt og grilla aðeins með fisknum og kreista safann yfir fiskinn.

