Réttur Dagsins

á Facebook
Lesa meira

Fréttir

So!Go !!
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Grilluð lúða með sinnepssmjöri

Réttur fyrir fjóra

Sinnepssmjör:
100 gr smjör við stofuhita
1 stk hvítlauksrif
6 stk basilíkublöð
2 msk kornað sinnep
1 tsk grænmetis express bouillon

Lúða:
4 x 200 gr lúðubitar
1 stk hvítlauksrif
2 msk sítrónuolía
Maldon salt
Nýmulinn pipar

Aðferð: Pressið hvítlauksrif í mjúkt smjörið. Saxið basilíkuna mjög fínt og bætið út í smjörið ásamt sinnepinu og grænmetiskraftinum. Hrærið vel saman og setjið til hliðar. Pressið hvítlauksrif yfir lúðubitana. Hellið sítrónuolíunni á fiskinn og saltið og piprið.

Grillið lúðuna í um 2 ½ mínútu á heitu grillinu á hvorri hlið. Setjið sinnepssjörið á og látið bráðna á lúðunni.

Til baka