Grillaður túnfiskur með soyja & engifer
Réttur fyrir fjóra
4 stk túnfisksteikur
1 stk hvítlauksrif
4 msk olía
50 gr engifer
50 ml japönsk soyja sósa
20 gr steinselja
Safi úr 1 límónu
Nýmulinn pipar
Maldon salt
Aðferð:
Pressið hvítlauksrifið út í olíuna og leggið túnfiskinn í. Saxið steinseljuna út í og látið liggja í kryddleginum í 2-3 klst. Saxið engiferinn smátt og blandið saman við soyja sósuna ásamt safanum úr límónunni. Setjið túnfiskinn á heitt grillið. Grill tími er um 1-1 ½ mínúta á hvorri hlið. Saltið og piprið.
Gott er að nota restina af sósunni sem ídýfusósu með túnfisks steikinni.
Til baka
