Réttur Dagsins

Nýtt á hverjum degi
Lesa meira

Fréttir

Aukavinna í boði
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Grillaður silungur með SoGo sultu

Réttur fyrir fjóra

2 stk silungaflök um 1 kg
1 stk hvítlauksrif
3 msk olífuolía
1 msk kornað sinnep
3 msk engifer-chilli sulta (frá So!Go)
½ búnt steinselja
1 tsk græn piparkorn
Maldonsalt
Nýmulinn pipar

Aðferð:
Maukið hvítlaukinn í matvinnslu vél, bætið ólífuolíunni út í ásamt sinnepinu, sultunni og steinseljunni. Penslið maukinu á silungaflökin. Grillið í um 3 mín á hvorri hlið, byrjið með roðhliðina niður. Smyrjið silunginn með kryddmaukinu á meðan. Saltið og piprið eftir smekk. Stráið grænu piparkornunum yfir fiskinn rétt í lokin.

Berið t.d. fram með bakaðri katöflu og mangó salsa.

Til baka