Grillaður humar með tælenskum brag
Réttur fyrir tvo til þrjá
2 kg humarhalar
50gr sæt tælensk basilika
3 stk hvítlauksrif
30gr engifer
30 ml sesam olía
60 ml sítrónuolía
Maldon salt og nýmulinn pipar
Aðferð:
Þegar humar er klofinn er best að leggja halan þannig að skottið snúi að manni og rauða hliðin snúi upp. Humarinn er svo klofinn með því að þrýsta hnífnum í gegn án þess að humarinn fari í tvennt. Þá er brotið upp sárið svo sárið snúi út.
Aðferð: Maukið basilikuna, hvítlaukrifin og engiferinn í matvinnsluvél. Blandið sesam olíunni og sítrónu olíunni saman við. Kljúfið humarinn og leggið í kryddolíuna í stutta stund. Saltið og piprið
Grillið á vel heitu grilli í um 1 ½ mínútu á hvorri hlið.
Til baka
