Réttur Dagsins

Nýtt á hverjum degi
Lesa meira

Fréttir

Aukavinna í boði
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Grillaðir humarhalar

Réttur fyrir fjóra

40 stk humarhalar
4 stk hvítlauksgeirar
6 msk ólífuolía
1 búnt ítölsk steinselja
salt og pipar
50 gr smjör
hálf sítróna
1 dl rjómi
1 tsk grænmetiskraftur
ítalskt smábrauð til að grilla

Aðferð:
Kljúfið humarhalana og fjarlægið görnina en ekki skelina. Afhýðið hvítlaukinn og pressið út í ólífuolíuna. Saxið steinseljuna út í olíuna. Raðið humarhölunum á fat. Kryddið hann með salti og pipar og smyrjið með olíunni. Grillið humarinn í örfáar mínútur á heitu grillinu eða heitri grillpönnu.

Bræðið smjörið í potti. Skerið sítrónuna í sneiðar og kreistið safann úr tveimur sneiðum út í smjörið. Setjið afganginn af hvítlauksolíunni saman við. Hellið rjómanum út í pottinn og kryddið með grænmetiskraftinum.

Til baka