Tvílitt fiskipate
Forréttur fyrir 8-10
800 gr steinbítur (roðlaus og beinlaus)
1 stk hvítlauksgeiri
1 stk laukur
Maldon salt
Nýmulinn hvítur pipar
2 msk capers
1 msk dijon sinnep
¼ búnt basilika
½ rauðlaukur
½ búnt vorlaukur
Aðferð:
Skerið Steinbítinn í bita og setjið í matvinsluvél, maukið vel. Merjið steinbítsfarsið í gegnum sigti og setjið í stóra skál. Maukið hvítlaukinn og laukinn mjög smátt í matvinnsluvél og bætið saman við steinbítsfarsið. Kryddið með salti og pipar. Bætið sinnepi og capers saman við.Saxið basilikuna, rauðlaukinn, vorlaukinn smátt og bætið í farsið. Hrærið rólega saman þar til allt hefur blandast vel. Leggið til hliðar þar til síðar.
300 gr ferskur lax
300 gr reyktur lax
1 msk (fínt saxað) engifer
1 tsk fáfnisgras.
4 limónulauf (kaffirblöð)
1 límona (bæði börkur og safinn)
1 msk kornað sinnep.
Nýmulinn hvítur pipar.
Aðferð:
Setjið ferska- og reykta laxinn í matvinsluvél og maukið vel. Setjið í skál. Saxið engifer, fáfnisgras og límónulauf mjög smátt og bætið út í laxinn. Fín rífið börkinn af límónunni og bætið saman við laxinn ásamt límónusafanum. Bætið sinnepinu saman við og piprið.
4 eggjahvítur
2 dl fisksoð
2 blöð matarlímsblöð
3 vænar sneiðar reyktur lax
Örlítið dill til skreytingar
Aðferð:
Stífþeitið eggjahvíturnar og skiptið þeim í fimm hluta. Þrír hlutar fara varlega saman við steinbítsfarsið tveir hlutar í laxafarsið. Smyrjið jólakökuform með olíu. Allt laxafarsið er sett í formið. Reykti laxinn er skorinn til og honum raðað á laxafarsið þannig að hann hylji allt farsið. Steinbítsfarsið er sett ofan á laxinn. Hyljið formið með álpappír. Bakið í vatnsbaði í ofni í 40 mínútur við 150°C. Kælið. Matarlímsblöðin eru lögð í kalt vatn í um 2-3 mínútur. Fiskisoðið er hitað og matarlímsblöðin leyst upp í því. Kælið aðeins. Matarlímssoðinu er penslað yfir fiskfarsið 2-3 umferðir. Dillinu raðað á til skreytingar og restinni af matarlímssoðinu penslað yfir ,þannig að það hylji dillið. Auðveld leið til að losa úr forminu er að halda því smá stund í heitu vatni og með því losnar farsið frá forminu. Gott er að bera fram létta sósu t.d. úr sýrðum rjóma.

