Hörpuskel með reyktum laxi
Forréttur fyrir fjóra
12 stk risahörpuskeljar
12 sneiðar reyktur lax
1 stk lime
1 stk hvítlauksrif
2 msk ólífuolía
20 gr garðablóðberg
Nýmulinn pipar
Maldon salt
Aðferð:
Setjið ólfífuolíuna í skál, rífið börkinn af lime-inu og kreistið safann yfir. Pressið hvítlaukinn saman við. Leggið hörpuskeljarnar út í og láti liggja í leginum í um 3 klst. Steikið hörpuskelina á heitri pönnu, tæplega 1 mín á hvorri hlið, saltið og piprið og setjið garðablóðberginu út á. Látið kólna. Vefjið reykta laxinum utan um hörpuskelina.
Gott er að bera fram á t.d. hreinu klettasalati og búa til sósu úr kryddleginum.
Sósa:
1 tsk sinnep
1 tsk hunang
Örlitið af ferskri rifinni piparrót
2 tsk balsamik síróp
Restin af kryddleginum og ef þurfa þykir ca 1 msk ólífuolía
Nýmulinn pipar
Setjið allt saman í skál og hrærið vel saman.
Til baka
