Réttur Dagsins

Nýtt á hverjum degi
Lesa meira

Fréttir

Aukavinna í boði
Lesa meira

Opnunartímar

Mánudagar - föstudagar
11:30 - 18:30
Laugardagar
11:00 - 14:00
Sími 533 1300
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík

Laxa- og pistasíufrauð

Forréttur fyrir fjóra

450 gr lax
2  stk lárviðarlauf
4 negulnaglar
½ sítróna
4 dl vatn
150 gr pístasíukjarnar
150 gr reyktur lax
1 lítið hvítlauksrif
10 gr engifer
2 msk kóriander
1 dl sítrónuolía
1 tsk masala krydd frá Nomu
Maldon salt
Nýmulinn hvítur pipar
8 vænar sneiðar reyktur lax.

Aðferð:
Setjið vatn í pott til suðu ásamt negulnöglum, lárviðarlaufum og hálfri sítrónu. Þegar suðan kemur upp setjið laxinn í pottinn og látið sjóða í um 2 mín. Takið pottinn af hitanum og kælið. Maukið pístasíuhneturnar í matvinsluvél. Takið ¼  frá til að nota síðar.

Bætið soðnum laxi, reyktum laxi, hvítlauk, engifer og kóriander saman við og maukið vel í matvinnsluvélinni. Bætið sítrónuolíunni og masala kryddi saman við  í lokin ásamt pipar og salti eftir smekk. Hrærið allt vel saman. Leggið sneiðarnar af reykta laxinum á vinnuborð. Setjið laxafrauðið á hverja sneið og vefjið laxinum utan um frauðið. Stráið afgangs hnetunum yfir og smá sítrónuolíu áður en rétturinn er borinn fram. Gott með ristuðu brauði.

Til baka