Fylltur smokkfiskur
Forréttur fyrir fjóra
12-16 stk litlir smokkfiskar
1 stk laukur
2 stk hvítlauksrif
1 lítið búnt steinselja
1 tsk Tom Yum kryddmauk
1 tsk madras karrý
300 gr rækjur
1 dl rjómi
1 msk sítrónusafi
Salt og pipar
Olía til steikingar
Aðferð:
Ef smokkfiskurinn er með haus þarf að fjarlægja hann og geyma þar til síðar. Einnig þarf að fjarlægja allt brjósk og himnur bæði að utan og innan. Skrælið laukinn og hvítlaukinn. Setjið annað hvítlauksrifið í matvinnsluvél og maukið ásamt lauknum, steinseljunni, Tom Yom, Madras karrý og rækjunum. Kryddið með salti og pipar. Setjið maukið í sprautupoka og fyllið smokkfiskinn. Setjið hausinn af smokkfisknum aftur á sem einhverskonar lok. Steikið á heitri pönnu í um 2 mínútur. Pressið hvítlaukinn yfir, hellið rjómanum á pönnuna ásamt sítrónusafanum og látið suðuna koma upp. Saltið og piprið eftir smekk.
Til baka
