Um Fylgifiska
Stikklað á stóru
FYLGIFISKAR, er nútímaleg sérverslun með sjávarafurðir fyrir kröfuharða neytendur. Við bjóðum upp á hágæða fiskafurðir á heimsmælikvarða auk annarra gæðaafurða sem þarf til matreiðslu.
Fyrri hluta vikunnar
er áhersla lögð á hversdagslegan mat eins og fiskibollur, plokkfisk og raspaðan fisk ýmiskonar. Að sjálfsögðu er þó mikið úrval af fínni fiskréttum fyrir matarboð og minni veislur.
Seinni hluta vikunnar
er áhersla lögð á veislumat hvers konar. Hægt er fá mikið úrval forrétta og aðalrétta fyrir stór og smá tilefni. Yfir þrjátíu fiskrétti er að finna í fiskborðinu okkar að Suðurlandsbraut 10.
Veisluþjónustan
skipar æ stærri sess í starfsemi FYLGIFISKA. Sífelt fleiri nýta sér þann kost að kaupa veislurnar sínar hjá okkur hvort sem það eru einkaaðilar eða fyrirtæki. Nánari upplýsingar eru hér á síðunni undir VEISLUÞJÓNUSTA.
Hádegisverður
í hádeginu eru heitir fiskréttir og súpa á boðstólum sem hægt er að borða á staðnum eða taka með. Sjá nánar undir flipanum Réttir dagsins.
Heildsalan Fylgifiskar
Fylgifiskar festu kaup á heildsölunni Provida á vormánuðum 2007. Með þeim kaupum hófst nýr kafli í rekstri fyrirtækisins en viðskiptavinir Fylgifiska mega eiga von á ýmsum nýjungum á næstu misserum.
Starfsmenn Fylgifiska
Sveinn Kjartansson – matreiðslumeistari/eigandi
Gunnar Logason – rekstarstjóri/eigandi
Guðbjörg Glóð Logadóttir – framkvæmdastjóri/eigandi
Helga Matthíasdóttir – eldhús/sala
Andrés Bragason – matreiðslumaður
Ebba Hrafnsdóttir – afgreiðsla
Sandra Ósk – afleysingar
Elías Marel – afleysingar
Herdís Helgudóttir – afleysingar
Verið velkomin!
Til baka
