Fyrir Fyrirtæki
og hópa
Mjög hefur færst í aukana að hópar og fyrirtæki taki sig saman og fái heimsendan mat í hádeginu. Fylgifiskar bjóða að sjálfsögðu úrræði fyrir þá sem ekki borða fisk en reynslan hefur kennt okkur að jafnvel hörðustu fiskhatarar borða Fylgifiska. Frí heimsending býðst þegar pantað er fyrir 10 eða fleiri.
Réttir dagsins breytast dag frá degi en hægt er að senda okkur póst (flipi efst á heimasíðunni : Pantanir) eða hringja í síma 533 1300
Einnig er hægt að panta kalda bakka með blönduðum salötum og brauði fyrir fundi eða hvers konar tilefni.

